miðvikudagur, maí 03, 2006

Þegar Pandora er opnuð er ekki aftur snúið


Hugi bennti mér um daginn á snilldar síðu, http://www.pandora.com/. Pandora er tónlistarstreymi síða sem býr til stöðvar eftir því hvernig tónlist þú vilt hlusta á. Segjum að uppohalds lagið þitt sé “mo better blues”. Þá slærðu því inn í leitarvél og Pandora býr til tónlistarstöð sem spilar sambærilega tónlist. Þú getur slegið inn flytjendur, lagahöfunda, tónlistastefnur og fleira og Pandora spilar lög í svipuðum dúr.
Pandora er útkoma "Music genome project". Verkefnið gengur út á það að skilgreina hvert og eitt lag eins nákvæmlega og hægt er.

Eftir að ég uppgötvaði Pandoru hef ég ekki hlustað á neitt annað. Það á að vera hægt að pósta stöðvalistanum á bloggi. Ég stefni á að setja súlu upp vinstra megin á síðuna með stöðvunum mínum þegar fram líða tímar (eftir prófin þegar ég á aftur líf). Ekki hika við að prófa og jafnvel skrá ykkur. Pandora er snilld. Hún opnar óþekktan heim tónlistar sem ógjörningur er að loka aftur á!

Engin ummæli: