sunnudagur, maí 14, 2006

Freydís frænka


Ég eignaðist ægifagra frænku í gær þegar Hrönn systir mín og Helgi maðurinn hennar eignuðust litla snúllu. Hún heitir Freydís Helgadóttir og er voðalegt krútt. Því miður fyrir mig er hún fædd í Þýskalandi þannig að ég fæ ekki að sjá hana eða halda á henni eða kyssa hana fyrr en síðar í sumar... nema einhver eigi flugmiða til Þýskalands sem hann sé ekki að nota?

Til lukku Hrönn og Helgi! (http://www.hi.is/~oth5/freydis/)

1 ummæli:

Ragnheidur sagði...

Til hamingju með litlu fallegu frænkuna.