Umskiptingur

Jæja, prófin kláruðust í gær og í dag snéri ég við blaðinu. Fyrir einstaka ótrúlega tilviljun var dagurinn í gær líka síðasti dagur stærsta sykur og óhollustufyllerís fullorðins karlmanns norðan Alpafjalla.
Í dag var holla mataræðið allsráðandi og það verður amk fram í september þangað til ég fer í brúðkaup aldarinnar. Ég hef sett mér ný og raunsæ markmið fyrir sumarið.
Í sumar ætla ég:
- Að stunda líkamsrækt í það minnsta annan hvorn dag. Undir líkamsrækt fellur: Líkamsræktarstöðin Hreyfing, hjólreiðar, sund, fjallganga og skokk.
- Að borða hollan og góðan mat eftir 10 grunnreglum. Undantekning skal gerð frá reglunum þegar um merkileg partí er að ræða. Þá er leyfilegt að neyta óhollra áfengra drykkja.
- Ganga í ýmis verkefni sem ég hef ætlað mér að klára undanfarið. Það eru ófá áhugaverkefni sem ég hef ekki komið mér í að framkvæma. Nú skal tekið til hendinni.
Fyrsti dagurinn byrjaði að mestu leiti vel. Ég hjólaði í ræktina, tók vel á því og hjólaði heim aftur. Fékk mér hollan morgunmat og hádegismat en borðaði reyndar grillaðar pulsur í kvöldmat. Geri betur á morgun. Byrjaði að enduruppsetja tölvuna, enda löngu kominn tími á að koma henni í samt lag aftur.
Í sumar ætla ég að verða brúnn, spengilegur, stæltur og láta mér líða vel í áhugaverðum verkefnum.

3 ummæli:
Til hamingju með að vera búinn í prófunum. Sjáumst svo vonandi 24.maí.
Anna
hvaða brúðkaup????
Já, það erum semsagt ekki við sem mundum halda brúðkaup aldarinnar í haust heldur Hrabbý og Steini, vinafólk okkar Hörpu.
Skrifa ummæli