Snooze alla leið

Það hefur löngum loðað við mig að ég hafi undarlegan tónlistarsmekk. Helst einkenni tónlistarsmekk míns er að ég fá yfirgengilegt æði fyrir einhverju einstöku lagi. Sum lög virðast hitta í mark hjá mér og ég fæ ekki nóg af því að hlusta á það.
Nýjasta æðið hjá mér er nýja lagið með Snooze, Alla leið (smelltu til að hlusta á það). Þetta lag er algjör snilld og ég búinn að hlusta á það í það minnsta 50 sinunm á síðustu 3 dögum, Hörpu ekki til neinnar óstöðvandi gleði. Valur Kári er meira að segja búinn að læra viðlagið og syngur nokkur orð með. Plata Snooze er væntanleg fyrir jólin og verður pottþétt á óskalistanum mínum
ef restin af lögunum verður eitthvað í ætt við þetta.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli