Minnisglöp

Nú eru senn 10 ár síðan ég útskrifaðist úr Réttarholtsskóla, þá 16 ára. Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Ég var fenginn í nefnd til að halda upp á þetta með því að halda reunion. Þegar ég hugsa til baka kemur í ljós að ég man ótrúlega lítið frá þessu þriggja ára tímabili. Helstu minningar eru óþægileg móment eða leiftur snögg skot af ýmsum ótengdum atburðum. Eitthvað rifjaðist upp þegar ég fór að skoða myndir en ég get ekki annað en skammast mín fyrir að þekkja ekki mörg andlit fyrrum samnemanda minni og að hafa gleymt nöfnum hinna. Ég ræddi þetta við Davíð félaga minn sem er nokkrum árum eldri. Hans svar var orðrétt: “bíddu bara þangað til þú verður jafn gamall mér”. Spurningin sem brennur í huga mínum er hvort ég hafi svona slæmt minni eða hvort þetta sé algengt meðal fyrrum samnemenda minna. Ein ástæðan gæti verið ómælt hormónaflæði. Það eitt man ég að ég var skotinn í annarri hverri stelpu á þessu tímabili. Sumar minningar eru vissulega hulnar rósrauðum bjarma. Það verður að minnsta kosti fróðlegt að sjá hvað rifjast upp fyrir mér á reunioninu. Þið getið skoðað nokkrar gamlar myndir af mér á síðunni sem ég bjó til fyrir reunionið, http://www.retto96.tk/.

2 ummæli:
kíkti á nokkrar myndir af handahófi og fann meðal annars eina af þér e-m manni og Helgu Bachman mömmu vinkvenna minna! kenndi hún þér?
Svona er heimurinn lítill. Jú jú, Helga Backman var umsjónarkennarinn minn.
Skrifa ummæli