fimmtudagur, maí 18, 2006

Íslandi til háborinnar skammar!


Ég ver að segja að illa var farið með íslensku þjóðina í kvöld. Ég, eins og flestir aðrir, horfið á keppnina af miklum áhuga. Eftir að allar þjóðirnar höfðu sungið sitt síðasta ákvað ég að taka þátt í kosningunni og kjósa Finnland, að sjálfsögðu. Ég hringdi inn í rétt númer og þá svarar einhver stelpuskjáta hratt og stubbótt með afundinni og fýldri röddu "atkvæði móttekið". Ég hef aldrei nokkurntíman heyrt annað eins leiðinlegt svar. Það virðist vera sem að konan hafi verið neydd til þess að ljá símanum rödd sína, eða þá að hún hafi verið tilneydd til að vinna þetta á launum sem samsvarar grunn lífeyrisgreiðslum eldriborgara. ÍSLAND VIÐ GETUM BETUR!

Engin ummæli: