Hlynntur

Um þessar mundir er ég mjög þreyttur. Ástæðan er endalaus árásir óþolandi hressra fagurgalandi einstaklinga sem neita að láta mig í friði og eru æfir í að heyra mína skoðun á borgarmálunum. Jú, þarna eru helv. frambjóðendurnir á ferðinni. Þeir hringja í mig, senda mér SMS (sami flokkur 2 sama dag), króa mann af í kringlunni og troða sér inn á kaffistofur landsmanna. Óþolandi, gersamlega. Staðreyndin er að mín afstaða hefur ekki hnikast neitt til síðan kosningaloforðin byrjuð að kaffæra mann. Lítil og nett könnun afstada.is staðfestið þetta, að minnsta kosti að "stærstum" mestum hluta.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli