Fosters Home for Imaginary Friends

Alveg síðan Valur Kári varð nógu stór til að hafa áhuga á morgunsjónvarpinu hef ég verið með ákveðið teiknimyndalag á heilanum. Það er titillag þátta sem kallast “Forsters Home for Imaginary Friends”(smelltu til að hlusta á það). Stefið er svo skemmtilega léttgeggjað að það smýgur inn í mín fínustutaugamót og lætur mig ekki í friði. Svo eru þættirnir sjálfir nokkuð skemmtilegir líka. Súr húmor og endalaus vitleysa. Hlustið á lagið nokkrum sinnum og finnið hvað geðveikin og taugaveiklunin smá smýgur inn. Þættirnir eru á dagskrá á laugardagsmorgnum einhverstaðar milli 8:30 og 9:15 (held það sé örugglega ca. 8:45).
Frekari upplýsingar um þessa kostulegu þætti má finna hér: http://fridays.toonzone.net/fosters/ eða hér: http://www.cartoonnetwork.com/tv_shows/fosters/index.html

Engin ummæli:
Skrifa ummæli