Bífrænn

Í gær gerðum við Harpa okkur glaðan dag í tilefni dagsins. Við fengum okkur góðan mat á veitingastað og fórum síðan að sjá stór-hasar-myndina Mission Impossible III sem var fínasta afþreying, í sjálfum sér.
Það sem vakti hinsvegar athygli mína er að risa-mega-gígantíski-stóri-auglýsingaskjárinn á horni kringlunnar var horfinn. Einhver hefur í skjóli nætur gripið þennan 4 metra háa skjá af efstu hæð bílastæðahúss Kringlunnar án þess að nokkur veiti því eftirtekt! Þjófurinn hefur auðvitað viljað horfa á úrslitaleiki HM á risaskjá úti í garði hjá sér og komist að þeirri niðurstöðu að enginn skjár á íslandi væri stærri en þessi.
Það sem mér finnst merkilegast er að þetta hefur algjörlega farið framhjá fréttamönnum morgun-, frétta- og blaðsins. Maður skyldi nú ætla að 4 metra hátt sjónvarp í garði einhvers ætti nú að vekja einhverja eftirtekt!

2 ummæli:
Þú fylgist greinilega ekki nógu vel með! Ég heyrði það í fréttum um daginn að skjárinn ákvað að bregða sér norður á landsmót hestamanna. Nú er bara að bíða og sjá hvernig hann tekur sig út á baki.
Gat verið að það væri bölvaður hestamaður sem stal skjánum!
Skrifa ummæli