föstudagur, júní 16, 2006

Heimurinn í hnotskurn

KFC kært fyrir notkun óhollrar steikingarfeiti

Bandaríska skyndibitakeðjan KFC hefur verið kærð fyrir að nota óholla steikingarfeiti, fulla af mettuðum fitusýrum til að steikja kjúklingabita. Það er miðstöð vísinda í þágu almennings og dr. Arthur Hoyte, eðlisfræðingur í Maryland, sem hafa kært fyrirtækið og krefjast þess að það noti aðra steikingarolíu. Að öðrum kosti verði neytendum ítarlega kynnt áhrif þess að neyta mettaðra fitusýra. Þá er krafist hárra skaðabóta.Talsmenn KFC í Bandaríkjunum segja að þeir viti vel að hægt væri að nota hollari steikingarfeiti á matsölustöðum þeirra. Upplýsingar um næringarinnihald á matseðli þeirra hefði þó lengi legið fyrir, meðal annars á heimasíðu KFC og því teldi fyrirtækið engan fót vera fyrir málarekstrinum.

Tekið af vef Rúv

Engin ummæli: