fimmtudagur, júní 15, 2006

Í þágu læknavísindanna

Ég ákvað að fórna mér í þágu mannkynsins til að stuðla að bættri heilsu í heiminum og framförum í læknavísindum.
Ég bauð Hörpu semsagt æðarnar mínar til þess að hún gæti æft sig í að setja upp æðalegg. Ég er sérstaklega æðaber og laus við nálahræðslu og er þess vegna auðvelt tilraunadýr. Fyrsta kvöldið stakk hún mig í bæði handarbökin með löngum æðaleggs nálum. Þær tilraunir gengu ekki sem skyldi, enda var Harpa stressuð að stinga í mig.
Nokkrum dögum síðar eftir að hafa fengið örlitla leiðsögn í vinnunni gerði hún þriðju tilraunina á mér og tókst hún einstaklega vel. Ég er hrikalega stoltur af konunni minni að geta stungið fólk með nálum og séð blóð án þess að blikkna. Það er meira en ég get hugsað mér að gera. Nú er bara spurning hvar hún vill æfa sig á að stinga næst?

Engin ummæli: