Argasta snilld

Nú er loksins væntanleg fyrsta dramatíska þróunarumbyltingin í hönnun og meðhöndlun lyklaborða. Rússneskt auglýsingafyrirtæki, Art. Lebedev Studio, hefur hannað lyklaborð sem vit er í!
Grunnhugmynd lyklaborðsins er að allir takkar eru forritanlegir og ekki nóg með það heldur er hver einasti takki lyklaborðsins lítill skjár sem hægt er að ráða myndinni á. Þetta þýðir að þú sérð á lyklaborðinu nákvæmlega hvað hver takki gerir. Engir límmiðar eða innbrendir stafir. Þegar þú ert í myndvinnslu getur þú séð myndrænt hvað takkarnir gera og þegar þú ert í skotleik geturðu séð hvaða vopn er á hvaða takka. möguleikarnir eru endalausir! Þetta er gadget sem ég vil eignast!
Sjá nánari upplýsingar um þetta lyklaborð hér:http://www.artlebedev.com/portfolio/optimus/

2 ummæli:
Hugmyndin er góð, en gallinn er auðvitað sá að maður er jú alltaf með puttana á lyklaborðinu. En það hefur jú þróast þannig og gæti þessvegna breyst ef maður veit aldrei á hverju maður á von á að hver takki merki...
Jú, það er rétt. Fyrir utan það að þetta verður svaðalega dýrt ef marka má verðið á 3 takka útgáfu "smátakkaborðs" sem komið er út frá þeim og kostar litlar 10þús krónur
Skrifa ummæli