þriðjudagur, júlí 04, 2006

Árans helvítis ólukka


Síðasta vika var aldeilis ólukku vika. Hún byrjaði reyndar ágætlega með því að ég átti afmæli, en á fimmtudaginn var hjólinu mínu stolið. Það stóð fyrir utan vinnuna hjá mér og einhver gerði sér lítið fyrir og klippti á lásinn, sem var nú frekar veglegur. Þjófurinn hafði með sér hjólið mitt sem er aðeins árs gamalt glæsilegt Trek 3700 hjól með brettum, hraðamæli (amk festingum), og líka festingu fyrir barnastól. Nú eigum við Harpa semsagt gagnslausan barnastól á hjól. Ég er búinn að flakka um hverfið að leita, án árangurs, og tilkynna um þjófnað til lögreglu. Ég er sem betur fer tryggður fyrir hluta skaðans, en þarf að bíða í mánuð sem tryggingafélagið gefur sér. Nema hvað, það er allur júlí, sá mánuður sem ég þarf mest á hjólinu að halda til að komast úr og í vinnu. Fkn frábært. Ef þið sjáið einhverstaðar mann á ferðinni á bláu/silfruðu trek hjóli með grárri barnastóla festingu skuluð hlaupa á hann og snúa þjófinn niður. Tékkið líka í bakpoka hans. Mig grunar að þið gætuð fundið 100" flatskjá sem hann nappaði af bílastæðahúsi Kringlunnar.

Ég var svo frá af sorg um kvöldið og annars hugar að þegar ég setti í þvottavélar tók ég upp á því að þvo Nokia 6100 GSM símann minn með buxunum mínum. Það þarf ekki að spyrja að því að ég á hreinasta ónýta GSM síma norðan Alpafjalla. Ég sakna símans míns sárt því hann var ægilega fínn basic sími sem gat hringt, send sms, móttekið MMS og spilað "Everybody dance now" hringinguna sem ég bjó til. Ekkert óþarfa drasl, bara nettur basic gæða sími.
Ég er þessa dagana að leita mér að hæfilega góðum notuðum SonyEricson síma því ég tími engan vegin að eyða í nýjan síma. Hvað er annars málið með ísland að bjóða eiginlega bara upp á NOKIA?

4 ummæli:

Ragnheidur sagði...

Árans óheppni er þetta. Vonandi er þetta búið og máltækið breytist í "allt er þegar tvennt er". Ég myndi tékka á því hvort heimilistryggingin þín nái yfir símaþvottinn ... sakar a.m.k. ekki að láta reyna á það.

Nafnlaus sagði...

Þetta kennir ykkur karlmönnum að ganga með veski! Nei, það er ekki stelpulegt!! Ekki vera að troða svona út alla vasa með nauðsynjahlutum!!! En að öðru leyti ertu ekkert lítið óheppinn!!!!

Nafnlaus sagði...

kaupa sony ericsson ... nokia er ekkert stuð!! og maður þarf ekki aukabúnað í símann sinn, fyrren maður fær hann ... þá þarf maður hann í smá stund og þarf hann svo ekki lengur. Skemmtilegt nokk.
--
Hinsvegar mæli ég hiklaust að fá þér síma með góðri myndavél. Sími með lélegri myndavél er arfa gagnslaus ... en sími með þokkalegri myndavél er mjööög sniðugt. þá er maður alltaf með myndagræju í vasanum.

Nafnlaus sagði...

æ greyið mitt gráa, en sammála Sif, ég kalla minn mann Sparibaukinn því það klingir í honum þegar hann gengur....