miðvikudagur, júní 14, 2006

Nagandi bakþanki


Samstarfsmaður minn er með fínan Samsung GSM síma með pólífónískum hringtónum. Hann hringir nokkrum sinnum á dag og þá spilast afbragðs stefbútur þangað til hann svarar, sem eru yfirleitt ekki nema um 5-10 sek. Þegar ég heyrði upphafsstefið fyrst kannaðist ég eitthvað við það. Næstu skipti sem síminn hringdi fannst mér ég ætti að þekkja þetta lag. Eftir nokkra daga var ég farinn að leggja eyrun við hlustir þegar síminn hringdi til að reyna að átta mig á þessu.
Eftir viku var ég farinn að hárreita mig í hvert skipti sem síminn hringdi því ég vissi að ég þekkti þetta lag ósköp vel og ætti vel að vita hvaða stef þetta væri. Þetta var ekki indiana jones stefið eða titillag Space Quest III en ég var orðinn sannfærður um að lagið kæmi úr skemmtanaiðnaðinum.

Á mándudag hringdi síminn enn aftur. Ég hoppaði hæð mína í lofti af taugatitringi, reytti hár mitt, hljóp út í horn þar sem ég kúrði mig niður í litla kúlu og ruggaði mér fram og aftur tautandi í sífellu "hvaða lag er þetta". Þá eins og fyrir himneska uppljómun rann upp fyrir mér ljós. Þetta var að sjálfsögðu stefið úr Black Adder þáttunum frábæru.
Nú líður mér mun betur og syng hástöfum með í hvert skipti sem síminn hringir, sem er því miður orðið sjaldgæfara af einhverjum ástæðum.

Engin ummæli: