Undir frostmarki í helvíti
Í morgun kom ég við í okurbúllunni 10/11 á leiðinni í vinnuna til að kaupa mér ávexti í nesti. Þegar ég labbaði inn gegnum rafdrifna búðainnganginn var ég sleginn í gólfið af einskærri undrun. Einn hillurekki sem áður hafði innihaldið súkkulaðiskilaboð við öll tækifæri og ýmsan ónauðsynlegan varning hefur nú verið fylltur af lífrænum heilsuvörum. Þarna er að vinna ýmiskonar lífrænt ræktað spelt, hafra, pasta, kex, hnetur, sósur, súkkulaði og allt mögulegt og ómögulegt sem ekki er hægt að finna venjulega nema í sérstökum heilsubúðum eða heilsuhorni Hagkaupa. Auðvitað er úrvalið af mjög takmörkuðu magni en miðað við smæð þessarar verslunar er úrvalið nokkuð gott.
Þetta er töluverður viðsnúningur hjá 10/11 sem hingað til hefur sérhæft sig í öllu fljótlegu og óhollu. Ókosturinn við þetta er hinsvegar að 10/11 hefur um leið náð nýjum hæðum í verðlagningu á matvælum. Þetta er tímamóta stefnubreyting hjá 10/11... en ég held ég haldi samt áfram að versla þessar vörur í Bónus/Hagkaupum/Heilsu eða Maður lifandi.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli