Blessaða beina brautin
Ég heiti Óskar og ég er sykurfíkill. Í dag fæ ég nýtt hjól og í dag er ég búinn að vera "þurr" í einn dag.
Í dag þáði ég ekki föstudagskaffi í vinnunni þrátt fyrir að það væri ógurlega girnileg súkkulaðikaka og ávaxtalengja (með kransakökumarsspani) í boði. Ég ætla heldur ekki að fá mér vöfflur í eftir-hádegismat eða nammi og kók í kvöld. Sykur er fíkniefni fyrir mér. Það er sætt og seyðandi og tekst að gleypa mig ef ég fæ mér eitt smakk. Nú tek ég aftur í taumana og hætti þessari vitleysu. Ég veit hvað það er gott að vera laus við sykur og ég veit að það er vel hægt að sleppa honum. Ég veit vel að hann er helst orsök þess að ég hef þyngst síðustu 2 mánuði. Ég veit að ég vil ekki sjá þessa þyngd. Ég VEIT að ég get betur.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli