Ávöxtun rauðrar bréfaklemmu
Hafði þið fylgst með manninum sem byrjaði með eina rauð bréfaklemmu, fór svo og skipti við fólk og endaði með einbýlishús í Canada? Kíkið á http://oneredpaperclip.blogspot.com/. Frekar magnað.
Af hverju fæ ég ekki svona brjálæðislega sniðugar hugmyndir?
Ég hef áveðið að fylgja fordæmi þessa snillings. Ég byrja hinsvegar með vegleri hlut og ætla setja markið lægra. Þetta er nú einusinni Ísland, sem er örlítið smærra en Bandaríkin.
Þessi skiptaleikur virkar þannig að ég býð ákveðinn hlut. Sá sem hefur áhuga að skipta við mig á þessum hlut og einhverjum öðrum jafn veglegum eða veglegri hefur samband við mig. Ég býð síðan þann hlut til skipta og þannig koll af kolli. Hægt er að hafa samband við mig í oskar@karlmenn.is með subject "Skipti".
Ég býð til skiptanna glæsilegan ónotaðan lyklakippuhring. Á honum er mynd af íslenskum hesti og skrifað "Ísland" ásamt nafnorðinu Hestur bæði á þýsku og ensku. Ég ætla mér að enda í flug og bíl ferð til Þýskalands. Hver vill byrja að skipta við mig?

Engin ummæli:
Skrifa ummæli