fimmtudagur, júlí 13, 2006

Enn meiri árans óheppni og annað betra


Nú hefur vonandi af mér gengið. Í dag dundi við þriðja óhappið og vonandi er þá allt komið. Á leiðinni í vinnuna í morgun bakkaði rúta framan á bíl tengdar móður minnar sem ég var að keyra. Blessunarlega varð hvorki slys á mönnum né dýrum og tjón á pólónum minniháttar þó það þurfi að laga stuðarann og skipta um eitt ljós.

Það er nokkuð ljóst ef eitthvað er til í heiminum sem kallast KARMA að ég á helling inni núna. Ég hugsa að ég fari í kvöld og kaupi miða í lottó.

Ég er smám saman að jafna mig eftir þessi áföll. Ég fór í dag í reiðhjólaverslun til að kaupa nýtt hjól. Það vildi svo ógurlega vel til að aðal maðurinn í búðinni er Ragnar, trommari úr Högnum sem fór með okkur Smaladrengjunum til Sönderborg (http://ljosvikingur.blogspot.com/2006/03/heill-s-r-fsturjr.html) fyrr á þessu ári. Það er óskaplega gott að hitta á mann sem veit hvað hann er að selja og getur gefið manni bestu ráðleggingar og kjör sem völ er á, enda varð það úr að ég festi kaup á mjög góðu hjóli og fylgihlutum. Núna iða ég í skinninu lítill krakki að fá hjólið, en ég sæki það eftir vinnu á morgun. Hver vill koma út og hjóla um helgina?

Engin ummæli: