Það er lítið og leikur sér
Það er ótrúlegt að eiga barn. Það eru engin orð eða hreyfingar sem geta lýst þeirri upplifun fullkomlega.Nú er rétt um mánuður í það að Valur Kári verður tveggja ára. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að fyrir rétt um tveimur árum var hann 3 kíló og gjörsamlega ósjálfbjarga að öllu leiti. Núna er hann 14kg stæðilegur KRAKKi sem hleypur um allt, hefur eigin skoðanir, langanir og vilja. Síðasta vika var enn einn vendipunktur í þroska hans. Hann uppgötvaði "þú" og "ég" og tók um leið einhverskonar stökk í skilningi á umhverfi sínu auk þess sem hann stækkaði og þroskaðist skyndilega í andliti á nokkrum dögum.
Í kjölfar þessa þroskastökks fannst mér tímabært að auka aðeins á orðaforðann og dýraþekkinguna. Fram til þessa hafa sumar dýrafjölskyldur verið nefndar undir ákveðnu yfirheiti. Til dæmis hafa íkornar, hamstrar, rottur og mýs gengið undir nafninu mús. Flóðhelstar, nashyrningar og fílar kallast fílar og fleira í þeim dúr. Ég ákvað að nú skyldi strákurinn læra muninn.
Við settumst upp í rúm eitt kvöldið á náttfötum og Valur Kári valdi sér dýrabók til að lesa. Eftir nokkrar flettingar kom síða þar sem íkornar léku sér í trjám. Valur Kári kallaði upp í mikilli gleði "mús! ti ti ti" og sagði sposkur: "nei Valur Kári, þetta er íkorni". Valur Kari horfði á mig undrandi en ég útskýrði fyrir honum að íkornar væru með stórt skott en mýs með pínulítið. "Íh-kohnn-i" sagði Valur Kári og benti stoltur á alla íkornana á opnunni. Við flettum á næstu síðu. "Íh-kohnn-i!" sagði Valur Kári. "Nei, þetta er hamstur. Sjáðu hann er ekki með neitt skott. Hamstur!" sagði ég. Valur Kári horfði dágóða stund á myndirnar af hömstrunum í dýrabúðinni og gúdderaði það síðan. Jú Hamstur er ekki með skott og þess vegna ekki íkorni.
"Amstur!" sagði hann og benti á alla hamstrana.Við flettum áfram og komum að opnu með frumskógardýrum. Hann þekkti vel flest en síðan benti ég á eina myndina og sagði "Tígrisdýr". Valur Kári leit á mig og sagði skýrt: "Ljón". "Nei Valur Kári, þetta er Tígrisdýr, arrrrwww" sagði ég á móti. "Nei pabbi, ljón" svaraði Valur Kári og setti í brýrnar. "Nei, þetta er ekki ljón, þetta er appelsínugult tígrisdýr. Sjáðu rendurnar, ljón eru ekki með rendur." "Nei pabbi, usss. Ekki tigisid, bara ljón!". Því var ekki hnikað þetta kvöld.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli