Mbl.is: Vonir bundnar við pillu sem örvar kynhvötina og dregur úr matarlyst
Tækni & vísindi | mbl.is | 30.4.2007 | 13:26:
Hópur vísindamanna vinnur nú að því að þróa pillu sem gæti aukið
kynhvöt kvenna og dregið úr matarlyst hjá þeim. Hingað til hafa vísindamennirnir aðeins prófað lyfið á kvenkyns öpum og snjáldurmúsum, en í pillunni er hormón sem losnar við inntöku. Eftir að hafa fengið pilluna sýndu dýrin fram á aukna löngun til þess að makast auk þess sem þau átu minna.
Vísindamennirnir hjá Medical Research Council's Human Reproduction Unit í Edinborg telja að hægt verði að þróa pillu sem þessa fyrir fólk á innan við áratug, segir á fréttavef BBC.
Sálfræðingar segja hinsvegar að rekja megi ástæður lítillar kynlífslöngunar megi fyrst og fremst rekja til sambandsvandræða para.
Talið er að hátt í 40% kvenna upplifi það einhverntímann á lífsleiðinni að finna fyrir litlum kynlífsáhuga.
---------------------------------------
Mér segir svo hugur að meiri hluti vísindamannana sem hér um ræðir sé óhamingjusamlega giftir karlmenn.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli