Stórtíðindi

Harpa fékk loksins svar frá skólanum. Hún fékk inngöngu í ljósmóðurfræðina í haust. Til hamingju Harpa mín! Þið látið svo vita ef ykkur vantar ljósmóður eftir tvö ár.
[Viðbætt] Og þessu tengt, lýsandi dæmi um nútímatækni. Það vildi svo til að við Harpa og Valur Kári skruppum eina nótt á Flúðir einmitt á föstudaginn þegar sendur var út tölvupóstur á þá sem sóttu um. Þar sem við vorum ekki í tölvusambandi notaði Harpa símann sinn til þess að sækja póstinn og lesa hann. Maður er sannarlega aldrei úr sambandi við umheiminn.

2 ummæli:
Frábærar fréttir. Til hamingju!
En ég þarf hana núna ;) híhí ... Ætli það verði þá ekki bara næst
Skrifa ummæli