miðvikudagur, maí 23, 2007

Er að massa þetta


Nú eru prófin löngu búin og fyrstu einkunnir farnar að sýna sig. Ég rifnaði af stolti og gleði í gær þegar ég fékk einkunn úr áfanganum Stjórnun og stefnumótun: Starfsemi og rekstur safna og upplýsingamiðstöðva. Haldið ekki að ég haf fengið 9! Hæsta einkunn gefinn, einn af tveimur! Námsmatið var 80% ritgerðarpróf en 20% hópverkefni sem unnið var á önninni. Ég fékk 8 fyrir verkefnið sem þýðir í rauninni að ég hef aldrei staðið mig eins vel í nokkru prófi eða fengið prófeinkunn á bilinu 9 til 9,5. Ég get nú ekki annað en næstum rifnað af stolti. Allra besta er að þetta er 5 eininga áfangi, sem vegur þungt í meðaltalinu og þrumaði mér upp yfir fyrstu einkunn (í meðaleinkunn þessarar námsbrautar).

Aðrar einkunnir sem ég hef fengið eru báðar upp á 7,5 sem er ekki afleitt heldur. En eiga tvær eftir að koma. Stundum er gaman að vera til.

Engin ummæli: