Er einhver á línunni?
Jæja, loksins loksins er ég kominn með nýjan síma.
Undanfarna mánuði hef ég verið að böðlast með gamla símann minn sem ég keypti notaðan fyrir um ári síðan. Stýripinninn var hættur að virka nema í 12% tilvika, sem gerði mér ansi hreint erfitt fyrir ef ég þurfti að fletta í símaskránni, fara í valmyndina eða skoða og senda sms. Eftir um þriggja mánaða hark sagði Harpa stopp og keypti handa mér síma.
Nú er ég stoltur eigandi SonyEricsson K550i. Það er skemmst frá því að segja að þessi sími er algjör draumur í dós. Ég hef aldrei verið eins ánægður með nokkurn síma. Hann er þunnur, þægilegur og með fleiri fítusum en mig óraði fyrir (flestir reyndar óþarfir, en skemmtilegir samt). Eitt það besta við hann er innbyggt útvarp og möguleiki á að hlusta á tónlist, en það hefur núþegar reynst ómissandi á fartinum.
Takk Harpa fyrir að þola ekki lengur bölv og ragn yfir gamla símanum. Hefði átt að gera þetta sjálfur fyrir löngu.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli