Barnagaman
Ég skrapp inn í Hagkaup í skeifunni um daginn til að grípa eitt og annað í búið. Þegar maður gengur inn fer maður framhjá litlu barnahorni þar sem hægt er að geyma börnin og leyfa þeim að horfa á video. Þar sem ég geng framhjá heyri ég ógurleg læti innan úr herberginu. Þegar ég kíkti inn sat þar lítill polli, líklega um 5 ára og horfið stóreygður á stórmyndina THE HULK.
Ég verð að viðurkenna að mér blöskrar gjörsamlega hverjum getur mögulega dottið í hug að setja aðra eins mynd í barnahorn Hagkaupa. Fyrir það fyrsta þá er hún bönnuð innan 12ára skv kvikmyndaskoðun Íslands og í öðrulagi er hún svo stútfull af ofbeldi, skotbardögum, sprengingum og reiði að það nær engu lagi. Og fyrir utan það þá er hún bara hreinlega hrútléileg, en það er önnur saga.
Ég held að þetta sé lýsandi dæmi um stórmarkaði í dag. Þarna hefur starfsmaður gripið mynd án þess að hugsa frekar. Það er vissulega staðreynd að HULK varningur er markaðssettur fyrir börn þrátt fyrir að myndin sé miðuð við unglinga og fullorðna. Sömu sögu má segja um aðrar teiknimyndapersónur eins og Spiderman og Batman. Þetta er bara ekki eðlilegt, og mér er hreint ekki sama þar sem ég er sjálfur að ala upp áhrifagjarnt barn.
Finnst ykkur eðlilegt að nánast einu nærbuxurnar eða náttfötin sem hægt er að fá á strákinn séu með Spiderman eða Batman, skriðdrekum eða orrustuflugvélum?
Starfsmenn Hagkaupa eru hér formlega beðnirum að vanda valið á myndum til að sýna börnum. Það er nóg úrval af ágætum barnamyndum þar sem lítið af ofbeldi kemur fram.

1 ummæli:
Gaman þegar þú ert duglegur að blogga! Og koma svo með myndir á síðu VK!!!
Skrifa ummæli