Gnægtabrunnur internetsins - Geni.com
Ef það finnst ekki á netinu, þá er það ekki til.
Fyrir tilstilli Daníels þá datt ég inn á vefinn geni.com. Hér er á ferðinni merkilegt fyrirbrygði, vefur til þess að búa til ættartré fjölskyldunnar þinnar.
Þessi vefhugbúnaður er alveg gífurlega lunkinn og sniðugur. Ég sjálfur á orðið voðalega erfitt að muna börn barna systra pabba, enda hittar maður þetta fólk ekki nema þriðja hvert ár eða svo og hvað þá að maður muni öll börnin sem börn barna afasystkina pabba. Núna er kominn vettvangur fyrir mig og alla fjölskylduna mína og fjölskyldur fjölskylduaðila minna til þess setja inn upplýsingar og myndir og sig og síðna.
Ein snilldin við þetta er að ég þarf ekki að setja alla inn. Auðvelt er að bjóða fjölskyldumeðlimum aðgang svo þeir geta sett inn sínar upplýsingar og sínar myndir og síðan boðið sínum aðilum aðgang sem geta sett sína inn. Til dæmis bauð hálfsystir Hörpu inn sínu fólki sem er farið að setja sitt fólk inn þannig að tréð hefur vaxið gífurlega í þá áttina.
Forritið er ótrúlega fjölhæft og skemmtilegt og ég mæli ótvírætt með því til skemmtunar of fræðslu. Hér að ofan er hægt að sjá mitt eigið ættartré.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli