fimmtudagur, apríl 03, 2008

Funny Farm þrautin


Hver kannast ekki við að hafa dottið í sniðugan leik á netinu. Maður hefur eytt löngum tímum í að skjóta niður kúlur, horfa á myndbönd og ég veit ekki hvað og hvað, en í síðustu viku var mér bent á leik sem er gjörsamlega óviðjafnanlegur.


Leikurinn kallast Funny Farm. Hugmyndin er frekar einföld. Takmarkið er að giska á orð út frá öðrum orðum.


Þegar þú byrjar þrautina færðu orðið "On the farm". Út frá þessu orðasambandi liggja nokkrar leiðir. Þú þarft að giska á hvaða orð er verið að leita að. Hvað er á bóndabæjum? Ákveðin dýr, vélar, fólk?

Til að koma þér af stað, þá getur þú til dæmis getur þú skrifað Cow. Við það opnast nýir möguleikar út frá cow þar sem þú þarft að finna orð sem tengjast cow merkingalega eða á einhvern fjarlægan hátt.
Eftir ótal tilraunir kemst þú út fyrir fyrsta skjáinn og þá lendirðu í öðrum glugga sem er með annað þema.


Maður þarf að vera ansi lunkinn til þess að komast áfram í þessum leik og mælt er með því að fá vini og kunningja til þess að hjálpast að. Ég er búinn að reyna við þetta ansi lengi en er ekki búinn að opna fyrir nema um 40% af gluggunum. Það sem gerir þetta ekki síður skemmtilegt er oft eru tengingarnar svo augljósar að maður fattar það ekki strax. Stundum er tengingin þannig að næsta orð hljómar líkt eða tengist óbeint. Eins og til dæmis Barn -> Barney sem vísar síðan á -> purple (btw, Barney er fjólublá risaeðla í Bandarísku barnaefni). Stundum gengur manni vel, en svo getur maður verið gjörsamlega stopp tímunum saman. Google og Wikipedia eru ómetanleg hjálp. Hér er líka nauðsynlegt að "think outside the box".


Kíkið á snilldina á: http://shygypsy.com/farm/p.cgi. Kominn tími'á hugs hugs hugs!


ps. Það merkilega við þett allt saman er að það er raunveruleg ein rétt lausn á þessu. Ef þú klárar heilan skjá færðu vísbendingu um aðal svarið, en til þess að geta svarað "the ultimate question" þá verðurðu að klára hvert einasta atriði á hverjum einasta skjá og gott betur. Skyldi svarið vera "42"?

Engin ummæli: