Marinn og blár
Bansettur bíllinn okkar tók enn upp á því í dag að neita að snúa lyklinum í svissinum. Þetta hefur nokkrum sinnum áður komið fyrir og ALLTAF þegar maður má síst vera að því. Í þetta sinn voru VK og Harpa stödd á Select uppi á Höfða á leiðinni á Flúðir. Ég fór ekki með í þetta sinn því ég þarf að vera heima og læra, læra, læra. Nóg af skilaverkefnum eftir páska og lokaverkefnið færist sífellt nær. En þau urðu semsagt föst þarna því svissinn er bilaður. Ég kom og bjargaði þeim með Pólóinn hennar tengdó svo þau kæmust af stað úr bænum. Ég eyddi klukkutíma í að reyna að þjösnast á lyklinum áður en pabbi kom með verkstæðismann frá Suzuki sem á endanum tók skrúfjárn, þrykkti því inn í svissinn og snéri af afli (þangað til eitthvað small) og þá gekk lykillinn hringinn.
Bíllinn er semsagt kominn á verkstæði, ég komst í skólann (2klst eftir áætlun) og sit hér bloggandi með bláan og marinn þumalfingur og vísifingur eftir að haf tekið á lyklinum í klukkutíma samfellt.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli