miðvikudagur, mars 12, 2008

Olgeir ofurhetja

Olgeir ofurhetja

Það kann að koma mörgum á óvart, en alveg síðan í barnaskóla hef ég haldið ótrúlegt leyndarmál. Ég er ekki bara Óskar Þór, einfaldur nemi, heldur er ég á næturnar ótrúlega ofurhetja, OLGEIR OFURHETJA.

Það vildi nefnilega svo óheppilega til eitt kvöld þegar ég var 13ára að ég var að labba framhjá rafstöð orkuveitunnar. Einmitt á þeim tímapunkti var rússnesk herflugvél að fljúga yfir með fullan farm af kjarnorkuúrgangi og svo óheppilega vill til að eldingu slær niður í flugvélina og veldur skammhlaupi í farangurs rampi með þeim afleiðingum að ein kjarnorkuúrgangsfatan fellur niður og lendir á mér. Fyrir röð undraverða atburða æxlast það þannig að þar sem ég stend lörðandi í kjarnorkuúrgangi lýst annarri eldingu niður í rafstöð orkuveitunnar og leiðir út beint í mig svo ég varð skyndilega eins og kjarnorkuknúin ljósapera. Öllu rafmagni sló samstundis út í hverfinu en ég lýsti eins og viti þar sem ég stóð þarna í losti.

Skemmst frá því að segja þá átti ég sök á ófáum rafmagnstruflunum í hverfinu næstu árin á meðan ég náði valdi yfir ofurhæfileikum mínum. Ég get hlaupið svo hratt sem eldingu lýst niður, skotið rafmagni úr höndunum, stjórnað rafsegul- og útvarpsbylgjum og séð með X-ray vision allt sem mig langar að sjá. Ég hef einn míns liðs varið Ísland fyrir ógnum heimsins. Ill ómenni og arðræningjar hafa ekkert haft í mig og nú eru illmennin Ógnarbrók, Hipp hopp Halli, Doktor Magarena og Fyndnasti maður Íslands vistaðir á bak við lás og slá á geðdeild Landsspítalans.
Vinsamlegast virðið ofur-einkalíf mitt og haldið þessu leyndu. Ég get bara ekki þagað lengur yfir þessu.

Myndirnar að ofan voru teknar á þemaárshátíð skátafélagsins Ægisbúa í Janúar síðastliðnum, en þar opinberaði Harpa sig einnig sem Harpa MacFinnegan, the Scotish hag.

5 ummæli:

Sigrún Helga Lund sagði...

Ég sé ekki myndirnar :(

Óskar Þór Þráinsson sagði...

svona, ætti að vera í lagi núna

Sigrún Helga Lund sagði...

Þvílík snilld! Ég er búin að liggja í kasti yfir þessu. Og uppþvottahanskarnir...!!! :D

Nafnlaus sagði...

vantar ennþá einhverjar myndir?
Ég sakna nebbla ofurhetju-brosins góða <:0D

Óskar Þór Þráinsson sagði...

Því er hægt að bæta við að þó nokkrir spurðu: "Ertu Mister Proper?" eða "Mr. Muscle, I presume?"
Tek þann pól kanski næst.