þriðjudagur, mars 25, 2008

Stóra beinfundarmálið

Ég búinn að fylgjast spenntur með beinfundinum í Kjósahreppi sem hefur verið í fréttum núna um páskana. Þetta hljómar eins og lýsing á góðri glæpasögu eftir Arnald:


Grafarlaus bein í mýrinni
eftir Indriða Arnaldsson

Á páskadag rekast börn á höfuðkúpubein sem liggur úti í móa. Við athugun málsins kemur í ljós að beinið er úr höfuðkúpu konu sem lést fyrir um 30 árum. Fram kemur kona sem telur beini koma úr búslóð hjólhýsis sem splundraðist í ofsaveðri um áramótin svo innanstokksmunir dreifðumst um svæðið...
Við rannsókn málsins beinast böndin fljótt að tengdarsyni konunnar sem segist hafa fengið það frá látnum afa sínum, sem var héraðslæknir á þeim tíma sem talið er að konan hafi látist.

Hér er á ferðinni æsispennandi spennutryllir um afbrýðissemi, fjölskyldudeilur, ást og galdra sem teygir sig yfir norðurlöndin endilöng þar sem rannsóknarlögreglumennirnir Sigurgeir og Sigrún grafast fyrir um fortíð stoltrar ættar með dimm leyndarmál.


Ég get ekki beðið eftir að þættirnir koma í sjónvarpi!

Engin ummæli: