No Stream of Soda
Ég er búinn að vera mjög að lang mestu leiti mjög duglegur síðasta mánuðinn. Ég hef dregið um 90% úr kókdrykkju og aukið grænmetisneyslu um 300%. Stefnan er síðan að auka hreyfingu um 400% (sem ætti reyndar ekki að vera erfitt, tölfræðilega séð). En jafnvel þótt ég sé ekki farinn að auka hreyfingu neitt verulega ennþá er nálin á vigtinni blessunarlega farin að hreyfast í rétta átt.
Það er herfilega erfitt að hætta í kókinu. Eða kannski heldur algjörlega ómögulegt að hætta í gosinu. Ég held ég geti ekki hætt að kaupa gos til að drekka "á ferðinni" og þess vegna eyðirmaður glaður 140kr í vatn með gosi og vott af bragði. Krónurnar safnast hinsvegar saman.
Mér hefur reynst ágætlega að eiga 2l kristal flösku í ísskápnum til að grípa í. Það er merkilegt hvað gosið endist lengi í þessum flöskum, ólíkt í kókinu.
Við Harpa höfum átt forlátt Sodastream tæki í mörg ár og notað það nokkuð, þó með hléum. Svona vélar eru alger snilld. Við höfum reyndar ekki notað bragðefni lengi, en að sóda könnu af vatni og skella appelsínu/melónu/epla/sítrónu/lime sneið í og láta bíða í svona hálftíma inni í ísskáp gerir alveg kraftaverk. Nema hvað... þegar ég ákvað að hætta í kókinu dró ég fram tækið og ætlaði að sóda. Þá komst ég að því að ég hafði klárað kolsýruna síðast þegar ég notaði tækið. Ég fór og splæsti í nýjan kút. Þegar ég skellti honum í frussaðist kolsýra út um allt svo ég náði með naumindum að skrúfa hann af áður en hann tæmdist. Ég hélt að hann væri bilaður og fékk nýjan, en í ljós kom að það er Sodastream tækið sem er bilað. Ég settist niður með skrúfjárn og mikinn vilja, en þrátt fyrir það hefur mér ekki tekist að laga það betur en svo að þegar ýtt er á takkann frussast kolsýra út úr öllum opum og ekkert gerist í flöskunni.
Ef svo heppilega vill til að einhver ykkar á þvílíkt undratæki sem rykfellur inni í skáp þá skal ég mjög gjarnan losa ykkur við það, og það án þess að taka nokkra greiðslu fyrir. Ef ekki, þá minni ég á að ég á afmæli í lok júní, og stefni auk þess á að útskrifast í vor. :)

1 ummæli:
Hef þegar fengið vilyrði fyrir láni á Sodastream tæki. Scnilld!
Skrifa ummæli