þriðjudagur, apríl 17, 2007

Gaprildi og ambindrillur

Ég er ofsalega hamingjusamur í dag. Í dag áskotnaðist mér nær ónotað eintak af bráðskemmtilega borðspilinu Fimbulfamb. Það vildi svo til að fyrir skemmstu var ég í hópaverkefnis vinnu og af einhverjum ástæðum barst talið að borðspilum. Þá minntist ég á hve ótrúlega gaman væri að spila fimbulfamb og harmaði sáran að það væri ófáanlegt. Mér til mikillar undrunar könnuðust fáir við það nema ein sem sagðist eiga það og hafa spilað það einusinni við lítinn áhuga. Nema hvað, hún spyr hvort ég vilji ekki bara eiga það. Ég hélt nú það.Nú loksins, nokkrum vikum síðar fékk ég það í hendur, en þetta spil er nokkuð merkilegt. Það hefur amk tvisvar farið í millilandaflug og hefur dvalið um tíma í Dannmörku. Það sést ekki á kortakassanum og nær ekkert hefur verið notað af lausnablaðablokkunum sem fylgdu spilinu. Frekar magnað. Takk takk, Ásta!


Ef svo ólíkleg vill til að einhver viti ekki útá hvað fimbulfamb gengur þá í stuttu máli snýst það um að upp er lesið fornt íslenskt orð, og þátttakendur eiga að geta upp á merkingu þess og skila skýringunni til "fambarans" á blaði. Fambarinn les svo innsendingar þátttakenda og rétta svarið upphátt af og stig fást bæði fyrir að giska á rétt svar og svo ef aðrir þátttakendur giska á að innsending eins af meðspilurunum sé sú rétta. Þetta spinnst jafnan upp í hlátursköst og hellings gaman þegar manni tekst að fá stig með ótrúlega sannfærandi lausnum.


Þá er það næsta vers.... hver vill koma að spila? Það er kominn tími á gott 'famb'.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég og ég held ég tali fyrir hönd bestu vinkonu minnar þegar ég segi að VIÐ ERUM SKO ALVEG TIL Í FIMBULFAMB. Hef að vísu ekki spilað þetta í mörg mörg ár en man bara að þetta er rosa stuð :)

Finndu tíma og ég mæti.

Anna

Nafnlaus sagði...

öfund öfund ;) ég væri sko alveg til í að spila!