sunnudagur, apríl 22, 2007

Óskar litli


Valur Kári kemur með gullkorn næstum því á hverjum degi. Hann er orðinn svo glettilega eftirtektasamur og stundum hefur hann mun meira frá að segja en hann getur tjáð með sínum orðaforða.
Í morgun kom hann hinsvegar með frjálslega athugasemd sem ég var minna hrifinn af. Hann og Hulda María frænka hans og besti vinur voru að borða cheerios í morgunmat. Valur Kári fór að skoða myndina aftan á pakkanum og eftir litla stund gall í honum: "hérna er pabbi, og hérna er mamma!" Ég kíkti á kassann og komst að því að ég er Gaui litli og Harpa er Albert Guðmundsson... ég er ekkert sérlega hrifin af þessari samlíkingu, en ætti kannski að taka þessa ábendingu alvarlega. Harpa hinsvegar... ekki veit ég hvernig á að túlka það!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það er ekkert erfitt að túlka það, ég er betri með boltann en þú....