sunnudagur, apríl 15, 2007

Vandræðagemlingar

Í gærkvöldi fór ég í bíó. Þa væri ekki frásögu færandi nema hvað að ég hef ekki skemmt mér jafn lengi yfir nokkurri mynd í fjölda mörg ár. Ég hló mig máttlausan á milli þess sem ég gapti og horfði á einstök atriði með pírð augu eða í gegnum fingurnar. Þvílík uppsetning, þvílíkar klippingar, þvílíkt plott... allt gekk hreinlega fullkomlega upp. Brandarar undu upp á sig þangað til maður gjörsamlega kútvelltist og hnitmiðuð biksvört kímnin ofbauð manni slag í slag. Ég hef aldrei lennt í því að hlæja að einhverri mynd alla leiðina heim úr bíóinu. Það fer ekki á milli mála að Bresk kímni "rúlar þokkalega". Þess verður pottþétt keypt í DVD safnið um leið og hún kemur út. Ég mæli tvímælalaust með HOT FUZZ í Sambíóunum Álfabakka. Athugið að atriði í myndinni geta vakið óhug ungra barna. Það er virkilega ástæða fyrir því að hún er bönnuð innan 16ára.
... Díses.... spurning hvort maður ætti að fara aftur. Þvílík argasta...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Við Bjarni erum enn að rifja upp atriði úr myndinni. Ekki spurning um að þarf að sjá hana aftur þegar kemur út á DVD, það voru svo margir smáatriðabrandarar!