laugardagur, apríl 01, 2006

Umskiptingur


Jæja, nú eru aldeilis tíðindi. Ég fékk símtal í gærkvöldi frá Magnúsi Magnússyni ritstjóra og framkvæmdasjóra Skessuhorns, fréttablaði Vesturlands. Þeir hafa verið í samstarfi við Morgunblaðið undanfarið og fengu upplýsingar frá þeim að ég hefði áhuga á blaðamennsku. Blaðamönnum morgunblaðsins fannst glettilegt próf mitt ekki nógu fágað og virðulegt til að geta verið í Morgunblaðinu en það var einmitt sem hentaði Skessuhorni. Þeir hafa nú boðið mér sumarstarf til reynslu og möguleika á framtíðarstarfi. Höfuðstöðvar Skessuhorns eru á Akranesi þannig að ég mun væntanlega nýta mér Akranes strætóinn mikið í sumar, en við Harpa erum að skoða hjúkrunarstarf fyrir hana á Akranesi eða í Borgarnesi.

Frétt um ráðningu mína og skemmtilegt viðtal við mig má finna á http://www.skessuhorn.is/

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með starfið. Maður verður að setja skessuhorn inn í netrúntinn sinn og fara að lesa eftir þig. Anna

Nafnlaus sagði...

Jújú, eeiiinmitt. Er þetta kannski viðtalið?