föstudagur, apríl 21, 2006

Ój-ógúrt

Ég komst að því um daginn að ég hef lifað í fávisku í fjöldamörg ár. Í flestum stórmörkuðum eða dýrari matvöruverslunum er snakkbar, stundum kallaður heilsubar. Þar er hægt að versla ýmsar tegundir af hnetum og þurrkuðum ávöxtum ýmist húðað hvítt eða brúnt. Ég hef hingað í fyrsta lagi talið hvíthúðuðu hneturnar og ávextina vera jógúrtnammi. Við nánari skoðun kemur í ljós að þetta sælgæti á ekkert skylt við jógúrt. Uppistaðan er fyrst og fremst sykur og þaðan af verra! Í öðru lagi hef ég haldið að snakkbarinn sé nokkuð hollur. Annað kemur á daginn þegar vel er að gáð. Ef út í það er farið þá eru eins tvær tegundir sem eru nokkurn vegin í lagi. Það eru annarsvegar pistasíu hneturnar og hinsvegar kasjú hneturnar. Gallin er samt að pistasíurnar eru langt frá því að vera “ferskar”. Þær eru litlausar og stundum orðnar mjúkar. Kasjú hneturnar væri fínar ef þær væru ekki að drukkna í salti. Þegar ég kaupi þær hvolfi ég úr pokanum ofan í sigti til að sigta saltið úr.


Ég skil ekki af hverju ekki er hægt að fá alvöru JÓGÚRT nammi. Það er yfirleitt nokkuð holt, eða amk ekki eins óholt. Af hverju þarf að húða fullkomlega góðar og hollar hnetur með allskonar sykri, hunangi salti og viðbjóði. Er það skrítið að offita og tannskemmdir séu að verða alvarlegt vandamál?

Engin ummæli: