Eggjandi páskar

Nú er súkkulaðihátíðin að baki án þess ég hafi smakkað brot af súkkulaði. Hefði ekki búist við því fyrir hálfu ári síðan að ég héldi út yfir páska án þess að detta með höfuðið á undan ofan í óhollustuhyldýpið. Það vantaði að minnsta kost ekki freistingarnar. Ég fékk Nóa og Siríus páskaegg númer 7 frá eigendum vinnunar. Harpa og fjölskylda hennar gerðu því góð skil. Við í sumarbústað á Flúðir til tengdó yfir hátíðshelgina. Þar var ýmislegt gúmmulaði á borðum eins og viðeigandi er, pönnukökur, sætabrauð, fleiri páskaegg og sitthvað fleira. Valur Kári var ekki hrifinn af súkkulaðinu og skyrpti bitanum sem hann smakkaði út úr sér. Hann gerði hinsvegar litlum hlauppoka góð skil. Þó ég hafi ekki drekkt mér í súkkulaði þá fékk ég að minnstakosti heilmikið út úr því að borða glæsilega lamba páskamáltíð og að slaka á í heita pottinum.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli