miðvikudagur, apríl 05, 2006

Barinn - Hollráð vikunnar


Flestir þekkja sallatbari og ótal margir hafa einhvern tíman keypt sér sallatbakka í Hagkaup. Ég hef sjálfur gert það í mörg ár, en síðustu mánuði hef ég gert mér grein fyrir því að bakki er ekki það sama og bakki.
Áður fyrr fékk ég mér gjarnan bakka í hádegismat til skiptis við pylsur, djúpsteikta kjúklingabita eða samlokur. Bakkinn var yfirleitt fylltur af pasta, sósu og einhverju kjöti og öðru þess háttar. Síðan keypti ég gjarnan kók til að drekka og jafnvel eitt lítið nammistykki í eftirmat. Nú hef ég komsist að því að þessi máltíð var á svo til engan hátt holl. Hún samanstóð í rauninni af hvítu hveiti, unnum olíum og sykri.

Í dag vel ég á allt annan hátt úr sallatbarnum. Í hádeginu í dag fékk ég mér lítinn bakka og fyllti hann með hráefnum úr 16 mismunandi boxum (áður fyrr var það líklega úr um 4 boxum). Hér fyrir neðan kemur uppskrift af hollum og ótrúlega bragðgóðum bakka eftir mínu höfði.

Sallatbakki Óskars:
Hráefnalisti er í réttri röð miðað við ísetningu og hefðbundinn sallatbar Hagkaupa.
Lykilatriðið er: lítið úr hverju boxi.

- sallat og kál úr, 3 bökkum (2 kálblöndur og spínat)
- gulrótastrimlar
- paprikubitar
- smátómatur og mascapone ostur í kryddolíu
- kjúklingabaunir
- rauðar linsubaunir
- gular baunir
- Babycorn, 1-2 stönglar
- kotasæla, nokkrar litlar slettur
- rauðlaukur, örfáir hringir
- kjúklingur, u.þ.b. ein full skeið sem er ca 1/5 af bakkanum
- túnfiskur, í aðra hliðina
- feta ostur
- 1-2 kjötbollur ef áhugi er fyrir
- Nokkrar slettur af Hummus (mjög bragðgóð brún kássa sem líkist örlítið kæfu í sjón. Er unnin m.a. úr kjúklingabaunum)
- Spínatblöð lögð yfir til að koma í veg fyrir að hummus festist við lokið

Það sér hver maður að þetta er mun girnilegri bakki en sá sem inniheldur pasta, kjöt og sósu. Pasta er allt of fyrirferða- og bragðlítið. Prufið þetta, ég lofa ykkur bragðteiti þar sem öllum er boðið!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þessi salatbar er greinilega orðin algjör snilld hjá Hagkaupum. Ég er reyndar svo heppinn að það er salatbar í mötuneytinu í vinnunni, þannig að ég borða alltaf í hádeginu eitthvað ekki ósvipað þessari upptalningu þinni. Ammmmm...