Laugardags skot
Síðastliðinn laugardag var tekinn upp lokaþáttur "Heil og Sæl" seríunnar, 10 þáttur sem sýndur verður eftir þrjár vikur. Þetta var einskonar lokahóf þáttarins þar sem allir komu með eitthvað girnilegt á hlaðborðið sem var að sjálfsögðu framreitt eftir 10 grunnreglum. Allir þátttakendur voru dressaðir upp og ég fékk alklæðnað frá Dressman. Ekki amarlegt það! Það var magnað að sjá hve liðið allt var orðið breytt og gaman að setjast niður og spjalla um sameiginlega reynslu okkar. 9 af 10 hópum eiga það sameiginlegt að hafa ekki farið eftir reglunum í einu og öllu, en öll eigum við það sameiginlegt að hafa breytt grunnmataræðinu. Tilkynnt var að þetta væru lokin á FYRSTU þáttaröðinni, sem þýðir annarsvegar að fleiri munu fá tækifæri til að komast í svona þátt og hinsvegar að ég mun eflaust fá heimsókn eftir hálft ár frá hjúunum til að athuga hvernig mér gangi.
Eftirfarandi texta sendi ég framleiðanda þáttarins sem einskonar uppgjör við þáttinn. Hann gerir skoðun minni og árangri nokkuð góð skil:
Það að vera viðriðinn grunnreglurnar 10 í fjóra mánuði hefur haft víðtækar afleiðingar á mataræði mitt, heimilisins og nánustu vina og ættingja. Grunn fæðuval og hráefnisnotkun í matargerð hefur gjörbreyst. Sykur og hveiti neysla hefur líklega dregist saman um 95%. Ávaxta og belgávaxta neysla er marfalt meiri en áður. Ég er mjög vakandi gagnvart innihaldslýsingum matvæla og gæðum hráefna í matargerð. Ég veit að mér líður mun betur þegar ég neyti hollra matvæla og hef lært að auðvelt er að skipta út óhollum venjum fyrir jafn bragðgóða eða bragðbetri rétti. Ég fer ekki í einu og öllu eftir grunnreglunum 10 en þær eru undirliggjandi leiðbeinandi reglur um hvernig ég vel mat. Ég á mér einstaka "nammi daga" við mjög hátíðleg tilefni en sú neysla ber nánast engan keym af fyrri lífsháttum. Ég bý vel að þeim ráðleggingum sem ég hef fengið frá Þorbjörgu og Oscari Uhmaro.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli