Tekinn í Bakaríið (Hollráð vikunnar)
Við Harpa fórum í kringluna til að versla og svoleiðis. Þar komum við auga á mikið úrval sílikon forma hjá versluninni Búsáhöld. Sílikon formin eru algjör snilld. Maður smyr þau einusinni og eftir þarf ekki að bera á þau aftur. Ékkert festist við þau, þau þola ótrúlegan hita og það má stinga þeim í uppþvottavélina. Við ákváðum að fjárfesta í dýrindis brauð eða kökuformi. Út frá því ákvað ég að láta verða af því að baka mér eigin brauð. Himnesk hollusta framleiðir undir stjórn Sollu speltmjöl bæði fín og grófmalað. Aftan á þeim er einföld uppskrift af hollu og góðu brauði sem ég ákvað að prófa. Uppskriftin er á þessa leið:
-----
Speltbrauð
5dl spelt (ég mæli með grófmöluðu spelti)
1 dl sólblómafræð eða sesamfræ eða kókosmjöl
3 tsk vínsteinslyftiduft
1/2-1 tsk. sjávarsalt
1 1/2 - 2 dl AB-mjólk eða sojamjólk
1 1/2 - 2 dl Sjóðandi heitt vatn
Blandið þurrefnunum saman í skál. Hellið vökvanum út í og blandað varlega saman. Á þessu stigi er hægt að setja ýmislegt fleira saman við brauðdeigið. t.d. sólþurrkaða tómata, ólífur, gulrætur, hvítlauk eða kryddjurtir. Setjið deigið í smurt brauðform og bakið í 25-30 mín. við 200°c.
-----
Ég er nú búinn að komast að því að ég er fljótari að skella í eitt brauð og baka það heldur en að fara út í búð eða bakarí og kaupa nýtt brauð. Auk þess er bakaða brauðið heitt og mjúkt beint út úr ofninum og með því innihaldi sem ég vel sjálfur. Ég er persónulega hrifnastur af brauði úr grófmöluðu spelti með kókosmjöli, en síðan er hægt að kaupa fimmkorna blöndu eða nota hörfræ eða hvað sem hugurinn girnist. Það er mjög auðvelt að búa til brauð sem hentar hvaða máltíð sem er og síðra hve það er hollt!

2 ummæli:
mmmm ... hljómar girnó. Enda er ég forfallin brauðæta. Hvað er annars vínsteinslyftiduft?
Þetta er mjög góð spurning. Ég hafði ekki velt því fyrir mér sjálfur. Vínsteinslyftiduft er hægt að kaupa frá Sollu (himnesk hollusta) en á vef hennar segir:
Munurinn á vínsteislyftidufti og hefðbundnu lyftiduft er eftirfarandi:
Vínsteins/Hefðbundið
Sterkja: Maísmjöl/Hvítt hveiti
Lyftiefni: Vínsteinn/Ál skyld efni
Skrifa ummæli