Bráðum búin áðí
Nú er álagið enn í hámarki.... eða réttara sagt, er búinn að vera undir miklu stöðugu álagi síðustu vikur. Fyrirlesturinn gekk vel í síðustu viku eftir tvær andvökunætur. Harpa segir að á miðvikudag hafi ekki verið hægt að tala við mig, ég var örþreyttur, utan við mig og ruglaður. Þess vegna tók ég mér tveggja daga pásu á fimmtudag og föstudag.
Á föstudaginn var reyndar hápunktur félagslífs Katalogosar, félags bókasafns- og upplýsingafræði nema, en ég er einmitt í stjórn... eða var fram að kosningu á föstudag. Farið var í heljarinnar óvissuferð með vísindaferð, mannaveiðum og veislumat. Það vildi svo merkileg til að þennan téða föstudag var krakkaskríll að mótmæla öllu og öllum við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Og viti menn, fyrsta stopp hjá okkur var VR en við keyrðum fram á skrílinn upp við hús verslunarinnar þar sem hópurinn ákvað að standa fyrir rútunni. Eftir nokkur leiðindi kom löggan og bjargaði okkur. Hópurinn lét reyndar ekki þar við sitja. Einn stálpaður krakki reyndi að leggja til nýkjörins formanns okkar, Andreu. Það er ég viss um að drengurinn hefði aldrei vogað sér að segja neitt ef hann hefði ekki verið í stórum hóp sem æstist allur við veru okkar. Síðan elti hópurinn okkur inn að anddyri VR og vildi elta okkur inn.
Við sáum það svo klárlega að þarna var tilgangurinn ekki að mótmæla neinu sérstöku, bara heiminum yfir höfuð og vera með vesen.
En nema hvað, heimsóknin hjá VR var mjög ánægjuleg, síðan fórum við með allan hópinn í lazertag lengst upp í Kópavogsnýlendum. Ég verð að segja það, skólasystrum mínum til hrós að allar fóru þær með inn í salinn hvort sem þær voru ungar eða á góðum aldri. Í lokin brunuðum við á TAPAS þar sem við fengum dásamlegan mat og drykk.
Um helgina tók síðan lestur við eins og hægt var að koma við en í nótt skilaði ég lokahandriti að lokaritgerðinni minni. Eins og við var að búast erum við Harpa að verða veik, bæði komin með hita og slappleika en Harpa er þó verr haldin. Ég ætla að halda mér uppi fram að helgi, en á föstudaginn skila ég fullbúnri prentaðri ritgerð og fer í 4 klst aðferðarfræði III próf... gaman gaman. Línuleg aðhvarfsgreining, fjölbreytugreiningar og whatnot. Í næstu viku fer ég síðan í vettvangsnám og skila 2 þokkalega stórum verkefnum til viðbótar og ÞÁ verð ég búinn. Nú er bara að taka sig saman, plástra og stúta nokkrum verkjatöflum og klára þetta. I can do, and I will.

1 ummæli:
Sendi þér smá vítamínbúst í gegnum netið. Gangi þér vel á lokasprettinum.
Skrifa ummæli