Bráðum búinn að læra
Þegar síðasta kennslutímanum í vefstjórnun lauk á fimmtudaginn var spurði vinkona mín og skólafélagi hvort mér þætti ekki skrítið að vera búinn með síðasta kennslutímann í háskólanum. Ég fékk vægt sjokk. Ég hafði engan vegin gert mér grein fyrir því að núna er ég formlega búinn að meðtaka svo til alla kennslu sem ég fæ í háskólanum. En það er ekki laust við að ég svolítið sorgmæddur. Maður er búinn að hafa það skemmtilegt með skemmtilegu fólki í tímum og sá félagsskapur hefur ekki verið síður mikilvægur og námið sjálft. Hvað tekur við í vor þegar maður heldur formlega á atvinnumarkaðinn (næstu ár áður en maður fer í framhaldsnám).
Þetta vor er auðvitað öðru vísi en venjulega þar sem ég er búinn að vera að vinna að og á mesta hasarinn eftir með lokaverkefnið. Ég á eftir að fara í eitt próf og skila 4 verkefnum til viðbótar og síðan er málþing þar sem ég kynni helstu niðurstöður lokaverkefnisins í næstu viku. Næst þrjár vikur verða ansi stífar, svo ekki verði meira sagt. Ég get ekki beðið eftir að klára og ÚTSKRIFAST... en það verður átakanlegt að mörgu leiti.
ps. frekari upplýsingar um málþingið er að finna hér: http://nemendafelog.hi.is/Katalogos/malthing2008.htm

Engin ummæli:
Skrifa ummæli