laugardagur, apríl 12, 2008

Úreld mynd, tæknilega séð

Í gærkvöldi horfið ég á hluta af John Travolta myndinni Blow Out . Myndin fjallar um hljóðmann sem fyrri tilviljun tekur upp hljóð af bíl"slysi" þingmanns sem sannar að um morð var að ræða.


Mér varð ljóst strax í upphafi myndar að þessi mynd hefði ekki elst eins vel eins og margar aðrar Travolta myndir. Plottið byggist á "ótrúlegri" hljóð og mynd klippi tæki síns tíma, en í dag er grátbroslegt að horfa á Travolta rölta um með 10kg segulbandstæki með segulböndum á stærð við matardiska takandi upp umhverfishljóð fyrir nýjustu bíómynd sína. Ég tala nú ekki um þegar hann fer heim í "hljóðver" sitt þar sem ótal risa segulbandstækjabúnaður er til staðar og ræmur upp um alla veggi. Seinna notar hann ótrúlega tæknilega þekkingu sína til þess að para saman röð mynda og sína hljóðupptöku til þess að sýna fram á ótrúlega samsæriskenningu sína. Maður getur ekki annað en brosað yfir öllu þessu, hvað tækniþróunin hefur verið ör á ekki nema 27 árum. Núna get ég gert allt þetta og töluvert ansi mikið betur í tölvunni minni án þess að svitna eða að þurfa að bíða í sólarhring eftir að "filman" sé framkölluð.

Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar aðalpersónan rifjar upp í miðri mynd þegar hann vann hjá löggunni við hleranir. Hann setti upp hlerunarbúnað á lögreglumann, en búnaðurinn var örugglega nokkur kíló þar sem sendingabúnaðurinn var á stærð við mjólkurpott... og þegar lögreglumaðurinn fór að svitna innan um bófana fór batterípakkinn að leka sýru og tækið að brenna yfir. Gjörsamlega óborganlegt atvik, (þó það hafi örugglega verið tilfinningaþrungið fyrir 27árum).

En það var nú ekki eingöng tækniundrin sem gerðu þessa mynd svona vonda. Ég gapti alveg þegar Travolta valsar um spítalann í upphafi myndar með sígarettu lafandi í munni milli lækna og sjúklinga. Sumt hefur breyst. Klæðaburður, hárgreiðslur og ofleikur hjálpuðu ekki heldur til.

Maður getur ekki annað en velt fyrir sér hvað Valur Kári muni hlæja að myndum nútímans eftir 27 ár. Verða CSI þættirnir meinfyndnir fyrir að nota DNA, fingrafarabanka og stafræna endursköpun? Verða 10megapixla myndavélar, plasmasjónvörp, DVD, HD og Bluray fornaldargripir sem sjást bara í gömlum bíómyndum?

Ég mæli amk alveg eins með því að kíkja á þessa mynd, þó það væri ekki nema til þess að brosa að tækni áttunda áratugarins.

Tíminn líður, trúðu mér,
taktu maður, vara á þér.
Heimurinn er sem hálagler
hugsaðu um hvað á eftir fer.

Engin ummæli: