mánudagur, maí 05, 2008

BA ritgerðin farin úr húsi


Ég skilaði 84bls lokaritgerð í gær: "Rannsókn á starfsvettvangi bókasafns- og upplýsingafræðinga". Skrítin tilfinning. Ég skilaði henni í tvíriti á skrifstofu félagsvísindadeildar. Ég var fyrir örlitlum vonbrigðum því það voru engir lúðrablásarar eða glimmer í loftinu þegar ég rétti skrifstofustarfskonunni eintökin. Ég er kanski ekki búinn að fatta þetta. Maður er buinn að vera að hugsa um þetta sólarhringum saman og á nóttunni hefur mig dreymt suma kaflana og verið hræddur um að rugla þeim í svefni. Kanski er það það að maður hefur alltaf séð fyrir sér takmarkið framundan, ekki að baki.
Skrítið. Mjög skrítið.Ég hlít að fatta þetta. Nú eru bara 3 verkefni eftir. Geðveikt!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að vera búinn að skila !!!!!

Kv.Ansla

Nafnlaus sagði...

Kúl! Til hamingju með skil :) Ég er heldur ekki búin að fatta að ég sé búin og var líka mjög fúl að fá ekki lúðrablástur og glimmer á skrifstofunni þegar ég skilaði. Maður ætti amk skilið súkkulaði!!

Sigrún Helga Lund sagði...

Til hamingju! Til hamingju!

Heyrðu! Loksins kíkti ég í H&M. Nærbuxur eru bara til í stærðunum 98-104 og 110-116. Og af öllum tegundum! (Boxers ofl.). Hvaða stærð viljið þið og hvaða týpu? :)