fimmtudagur, ágúst 02, 2007

Djúp meining?


Ég, eins og margir , er mikill aðdáandi Tolkien og Lord of the Rings heimsins. Það er alkunna að Tolkien gruflaði í ýmsum fornum bókmenntum, þar á meðal Íslenskum, enda heita ýmsir dvergar forníslenskum nöfnum, meðal annars úr Eddukvæðunum. Þið vitið eflaust líka að holdgervingur hins illa í sögunni er hinn voðalegu Sauron. Ég hafði aldri velt fyrir mér hvort eitthvað lægi á bak við nafnið.

Það var í gærköldi sem ég rakst óvænt á mögulega útskýringu í gamalli íslenskri særingu:

Dvergamál
Sauranda' vondan sendi, nú
sovið stefnu stríðið, sem sjór fellur
út og að stórum stein lifendur finnast
ljettfærir færir andar liggur manns
hold hulið moldu, sem svín gérir
jafnann saurga trýni, sjór í stormi
ber báru, sem elda brennir líkur
á foldu urtir úr jörðu byrlast
stein sendur er í sj'ónum, sveinar
útrása, sálir helgra burt frá báli
álög fylgja mínu máli
álög fylgja mínum máli.

Amen!

Með særingunni fylgir sú skýring að Saurandi = óhreinn andi. Saur-andi. Segir sig sjálft. Þá liggur beint við að hugsa að Sauron sé útgáfa af Sauranda. Hjómar að minnsta kosti ekki ósennilega þannig séð burt séð hvort það sé rétt eða rangt.

Engin ummæli: