Afþreying í veikindum

Ég hef verið að glíma við hita og slubb síðustu daga. Ég ÞOLI ekki að vera veikur. Harpa segir (réttilega) að þar sem ég er svo til aldrei veikur þá þoli ég illa að vera "lítið" veikur. Það má segja að ég sé ekki vanur veikindum.
Eins og allir vita þá er voða gott þegar maður er veikur að kúra sig í sófanum og horfa á eitthvað heilalaust. Ég ákvað að horfa á stórmyndina "The Fantastic 4: Rise of the silver surfer". Mæli hiklaust ekki með henni nema í alvarlegum veikindum eða þreytu. Ver þó að segja hápúnktur myndarinna er í miðri mynd þegar aðal vísindamaðurinn segir svo eftirminnilega:
"...your cells are in a constant state of flux..."Sannarlega brilliant handrit...

Engin ummæli:
Skrifa ummæli