miðvikudagur, ágúst 08, 2007

Krúttípútt

Valur Kári er stundum algjört rassagt. Ég sótti hann á leikskólann í dag og við löbbuðum af stað framm í fatahengi. Við fatahengishurðina ætla ég að taka í húninn en skyndilega tekur VK andköf og stynur upp. "Ohh ég gleymdi..." og svo hljóp hann til baka inn á deild. Ég elti en þegar hann kom inn hljóp hann til Brynhildar Ingu vinkonu sinnar og sagði "Má ég kyssa þig bless?" Þau kysstust ótrúlega krúttlega (þvílíkt kodak moment að það var grátlegt að vera ekki með myndavél með). Síðan hjóp hann til Kristjáns Una og vildi kyssa hann. KU var nú reyndar ekki á þeim buxunum þannig að þeir knúsuðust bara. Að lokum kyssti VK Bóas Orra og þá var hann tilbúinn að fara heim.


Þetta er ótrúlega lýsandi dæmi um það hve ánægður hann er á nýju "stórukrakka"deildinni, Hulduhól, en hann byrjaði loksins þar eftir sumafrí.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Krúsimús hann litli frændi! Mjúkur og góður eins og pabbi sinn! Þyrfti að taka þig svo í smá stafsetningarupprifjun... ;-)