Röng slaufa?

Fyrir skemmstu komst ég að því að ég hef í fjöldamörg ár verið að gera slaufur á rangan hátt. Mig grunaði reyndar aldrei að hægt væri að gera slaufur á fleiri en einn hátt, og þaðan að síður að það skipti einhverju máli.
Tilfellið er hinsvegar að það er alls ekki sama hvernig þú hnýtir skóna þína. Flestir byrja eins, þ.e. gera lykkju. Næst gerir fólk hring í kringum fyrstu lykkjuna, en þar liggur munurinn. Það er semsagt ekki sama hvort þú ferð réttsælis (klukkuhringinn, eins og ég hef alltaf gert) eða rangsælis. Það kemur í ljós, að vandlega skoðuðu og staðfestu máli, að slaufa hnýtt rangsælis helst mun lengur heldur en hin. Þetta er sérstaklega gott að vita þegar maður hnýtir skóreimar barna sinna.
Ótrúlegt hvað margt er hægt að læra í heiminum í dag!

2 ummæli:
Veistu...það er bara alls ekki svo óvanalegt að hnýta slaufur "vitlaust". Við systurnar komumst að því fyrir löngu að við hnýtum ekki slaufur á sama hátt.Ekkert eðlilegra en það :)
Kveðja,
Ólöf
Já það er alltaf hægt að læra af stóru systur sem býr yfir svo mikilli visku...
Skrifa ummæli