föstudagur, febrúar 09, 2007

Óþolandi uppfinningar úr forneskju


Ég hef undanfarin misseri verið að grufla í þjóðsögum og ýmiskonar forneskju. Það rakst ég á mjög athyglisverða frásögn.

Jesúm Kristur á að hafa skrifað bréf með "eigin guðdóms hendi" og látið erkiengilinn Mikael birta það í Þýskalandi. Afskriftir af þessu bréfi þóttu merkilegar á Íslandi og sumir töldu að ef maður bæri bréfið á sér myndi það verja mann gegn öllum voða.

Bréfið sem þekktast er hljómar svona:

[Þetta er] Útskrift af bréfi því sem drottinn Jesúm hefur oss opinberað fyrir höfuðengilinn Michael og hann sjálfur skrifað hefur í staðnum Michaelsborg ekki langt frá Fríborg. Þar hékk eitt bréf; en hvar á það hékk vissi enginn. Það var skrifað með forgylltum bókstöfum. Hvör eftir því bréfi vill skrifa, til þess hnegir það sig niður. Ef nokkur til þess seilist og eftir því grípur, frá þeim sömu líður það upp og flýr í burtu.
Það byrjar so sem hér segir: Ó börn, sjáið þetta bréf og vel athugið sem fyrir engilinn Michael er befalað og útsent. Hvör sem nú vill erfiði á sunnudaga fremja fyrir góz og peninga, sá er forbannaður. Þar fyrir bið eg yður sem vera viljið Guðs börn að þið um sunnudaga ekkert erfiði fremjið, í mínu nafni, hvorki líkamlega né með auðapanna ágirnd. Baktalið ekki hvör annan með yðar tungu, útsvallið ekki yðar ríkdómi ónytsamlega fyrir syndir og ljótan lifnað og vondan; víkið ekki þann fátæka, föðurlausa og móðurlausa né yðar náunga. Útgefið og eigi falskan vitnisburð heldur talið sannleikann hvör við annan og verið sem bræður innbyrðis. En hvör eð ei hefur þessa trú sá hinn sami er fordæmdur og hans sál blífur fortöpuð að eilífu. Og hvör sem þekku bréfi ekki trúir sá er öldungis glötunar sonur og hefur hvorki lukku né blessunar að vænta. Og ég segi yður, bræður, að þetta bréf hef ég sjálfur, Jesús Kristur með minni eigin guðdómsheldi skrifað og út ganga látið, og hvör hér móti segir sá er yfirgefinn og skal ekki hafa hjálp af mér að
eilífu. Og hvör sem þetta bréf hefur og opinberar það ekki, hann er forbannaður af kristilegri kirkju eðaur guðs söfnuði og yfirgefinn af minni almættis hendi.
Þetta bréf skal hvör eftir öðrum skrifa, og þó þér hafið drýgt so margar syndir sem sandur er á sjávargrunni og lauf á trjánum, gras á jörði, stjörnur á himni og dropar í regni þá skulu þær yður verða fyrirgefnar að eilífu. En hvör sem þessu bréfi ekki trúir hann skal deyja og hans börn eilíflega. Ó hó, snúið yður til mín, annars hljótið þér að pínast í helvíti. Ég mun spurja yður á þeim síðasta degi og munu þér þá ekki kunna að svara mér inu orði á mót þúsund og það sökum yðar synda og afbrota. En hvör sem þetta bréf í húsi hefur eður hjá sér eður á sér ber, hann skulu hvorki skruggur, reiðarþrumur né óverðrátta slá; hann skal verða vel forvaraður fyrir eldi og
vatni og hjálplegur verða. Sömuleiðis hvör helxt sem þetta bréf ber á sér, hann skal fá gleðilega velgengni í þessum heimi og að síðustu eilíft líf. Ó börn, haldið mín boð sem ég hef fyrir minn engil Michael sent og opinberða. Ég sá sannorði Jesús með minni eigin hendi skrifað hef við Míkilborg, ei langt frá Frýborg.
Og var sent þetta bréf frá Kaupinhafnar þann fyrsta dag mánaðarins janúarí, sem vér köllum vorn nýjársdag, þá skrifaðist anno Christi 1648

---------------------------------
Þetta er við fyrstu sýn nokkuð eðlilegt hjátrúa bréf, en mér fannst formið á því undarlega kunnuglegt. Eitt ákveðið atriði opnaði augu mín: "Þetta bréf skal hvör eftir öðrum skrifa..."
Bíddu nú við... eitthvað hef ég séð svona áður. Bréf með ákveðinn boðskap eða tilmæli og minnt á að dreifa bréfinu út. Ef þú fjölfaldar bréfið verður allt gott (í þessu tilfelli syndaaflausn) en ef þú gerir það ekki rotnar þú og allir þínir afkomendur í helvíti.

Það er nokkuð ljóst að keðjubréfa-spam-tölvupóstur er aðeins ný útgáfa af yfir 350ára gamalli hugmynd. Það væriforvitnilegt að vita í hvaða formi svona rusl verður árið 2357!


Með því að blogga þetta bréf er ég hér með búinn að tryggja mér syndaaflausn og aðgang að himnaríki. Nú er komið að ykkur að ákveða hvort þið viljið komst þangað líka eða brenna í glötun.

Engin ummæli: