Munnbiti af hamingju
Í síðustu viku fór gífurlega í taugarnar á mér hve Valentínusardagur Völu Matt var markaðssettur út um allt í sjónvarpi og útvarpi. Við Harpa héldum hann alls ekki hátíðlegan, enda há-amerísk hátíð.
Það fór hinsvegar næstum því framhjámér að í dag væri konudagurinn. Blessunalega frétti ég það um miðjan daginn. Ég þurftið að koma við í búð og ákvað þar að koma ekki heim með blóm heldur það besta sem ég við Harpa fáum okkur, þá sjaldan að það er til. KinderMaxi er guðdómlegt súkkulaði, ómæld ánægja í hverjum bita. Þýskt gæðasúkkulaði, það sama og hylur KinderEggin. Mikið óskaplega er þetta súkkulaði gott. Gantz Wunderbar!

2 ummæli:
Vala Matt?? Það var hún Valdís útvarpskona sem auglýsti Valentínusardaginn svo grimmt fyrir nokkrum árum! Þess vegna oft kallaður Valdísardagur... :-)
Ahhh, það er rétt, ég var að reyna að muna þetta. Vala Matt, Valdís... þetta eru hvort tveggja froður
Skrifa ummæli