Ég er einstæður faðir

Þessa dagana er ég allt í öllu á heimilinu. Ég sé um strákinn, elda, þríf, þvæ og þurrka. Fer í skólann, vinnu, sæki strákinn og allt annað sem
fylgir því að reka heimilið. Ástæðan fyrir þessu er reyndar eðlileg. Harpa er nefnilega að leggja lokahönd á lokaritgerðina sína, en hún mun
útskrifast sem hjúkrunarfræðingur í lok febrúar.
Það er af mér að frétta að ég byrjaði í nýju hlutastarfi fyrir skemmstu. Ég hef semsagt verið ráðinn sem "Sérfræðingur" hjá Focal, Hópvinnukerfum til að sinna ráðgjöf, prófunum og handbókargerð fyrir skjalakerfishluta hugbúnaðarins sem fyrirtækið þróar og selur. Þetta er semsagt fyrsta spennandi starfið sem ég fæ tengt náminu. Mjög spennandi. Svo er ekki verra að vera orðinn sérfræðingur á ákveðnu sviði.

2 ummæli:
Sæt mynd af ykkur feðgum ;)
Já, eitthvað hafið þið breyst frá því ég sá ykkur síðast! ;)
Til hamingju með starfið og vonandi gengur Hörpu vel á lokaspretinum.
Skrifa ummæli